• A-
  • A
  • A+
Neytendur

Upplýsingar fyrir neytendur

Verkefni úrskurðarnefnda er að taka ágreiningsmál í viðskiptum neytenda og fyrirtækja til meðferðar og leita lausnar á hlutlausan hátt á grundvelli gildandi laga, reglugerða og eftir atvikum fordæma í svipuðum málum. Það eru eingöngu neytendur sem geta lagt fram ágreiningsmál og fengið álit og tillögu að lausn. Í sumum tilvikum eru álitin bindandi en í öðrum tilvikum eru þau það ekki. Neytendur og fyrirtæki geta þó alltaf tekið ákvörðun um að fara með ágreiningsmál til almennra dómstóla.

Áður en þú leggur mál inn hjá kvarta.is

Hefur þú leitað eftir úrlausn beint til fyrirtækisins sem seldi þér vöruna eða þjónustuna? Hafi þér verið neitað að leyst verði úr málinu, tillaga að lausn er ekki ásættanleg eða þér hefur ekki verið svarað eftir að þú hefur sannanlega sent beiðni um það þá getur þú lagt fram kvörtun fyrir hlutaðeigandi úrskurðarnefnd sem mál þitt fellur undir.

Kostar eitthvað að fá mál tekið fyrir?

Úrskurðarnefndir taka mismunandi málskotsgjald og ákveður hver og ein nefnd gjald þetta. Ekkert gjald er hins vegar tekið þegar mál er tekið til meðferðar hjá kærunefnd lausafjár-og þjónustukaupa. Málskotsgjöld eru þó almennt lág hjá úrskurðarnefndum miðað við raunkostnað við meðferðina. Í sumum tilvikum eru þau endurgreidd ef niðurstaða er neytanda í vil.

Er opinn aðgangur að erindi mínu?

Á meðan að málsmeðferð stendur hafa eingöngu starfsmenn nefnda aðgang að gögnum og málsskjölum svo og gagnaðili að deilu. Þegar að máli er lokið er skylt að gera opinbera niðurstöðu í máli og birta hana. Þannig geta neytendur treyst að samskonar mál hljóti samskonar meðhöndlun. Um aðgang að upplýsingum hjá opinberum aðilum fer að öðru leyti eftir ákvæðum upplýsingalaga.

Hvað lög og reglur gilda í viðskiptum við neytendur?

Á Íslandi eru í gildi ítarleg löggjöf sem verndar neytendur í viðskiptum við seljendur á vörum og þjónustu. Á þessari vefsíðu er ekki að finna heildstætt yfirlit um öll lög eða reglugerðir sem í gildi eru. Hér fyrir neðan má þó finna hlekk á ýmsar síður sérstjórnvalda sem birta slíkar reglur en þetta yfirlit er ekki tæmandi. Hlekkur á síður/Link to several pages: Neytendastofa, FME, Póst-og fjar...etc)

Lagasafn Íslands

Á vef Alþingis má finna öll gildandi lög á Íslandi. Á vefsíðu Stjórnartíðinda má einnig finna allar reglugerðir svo og EES viðbætir sem hefur að geyma Evrópulöggjöf á íslensku sem gildir hér á landi á grundvelli ákvæða um aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Auk þess er unnt að skoða Evrópulöggjöf á öllum tungumálum ESB ríkja á vefsvæði Eurlex sem er vefsvæði ESB. Hlekkur á Alþingi – Hlekkur á Stjórnartíðindi – Hlekkur á Eurlex

Niðurstöður og algeng fordæmi

Úrskurðir á ágreiningsmálum utan dómstóla eru opinberir. Það getur því gefið þér nokkra hugmynd um hvernig reynir á ýmis atriði fyrir nefndum með því að kynna þér ýmsar algengar niðurstöður fyrir nefndum. Allar nefndir birta sína úrskurði og ársskýrslur. Hér fyrir neðan getur þú séð ýmis algeng mál sem nefndir hafa leyst úr. Athugið að þetta yfirlit er ekki tæmandi en aðeins sett hér til að veita þér innsýn í störf nefnda. Kærunefnd lausafjár og þjónustukaupa. Úrskurðarnefnd um ágreining við fjármálafyrirtæki. Efnalauganefnd.

Hvernig legg ég fram beiðni um lausn ágreinings?

Það er einfalt að skrá sig sem notanda á kvarta.is og þannig færð þú þitt einkasvæði þér að kostnaðarlausu. Eftir frumskráningu þá færð þú aðgang að viðeigandi eyðublöðum og fyllir þar út eyðublað þeirrar nefndar sem þú telur að mál þitt eigi undir. Hafðu í huga að áður en þú fyllir það út og skrifar inn málsatvikin að þú sért einnig tilbúinn með helstu gögn, s.s. afrit samnings, kvittana eða samskipta við seljenda sem þú vilt að fylgi þínu máli. Þrátt fyrir að búið sé að senda inn beiðni um álit og fylgigögn þá getur þú ávallt hlaðið upp viðbótargögnum síðar.