Kæru- og úrskurðarnefndir
Komi upp deilumál milli neytenda og seljenda er varða
samningsbundna skyldu sem rís af sölu- eða þjónustusamningum,
skiptir miklu máli að neytendur hafi aðgang að einföldum,
skilvirkum, hraðvirkum og ódýrum leiðum til að leysa deilumál utan
dómstóla. Málsmeðferðarreglur verða ávallt að vera skýrar,
hlutlægar og sanngjarnar, sbr. tilmæli 98/257, sjá hér.
Á Íslandi eru flestar kæruleiðir neytenda byggðar á frjálsri
aðild fyrirtækja sem í hluta eiga. Nokkur dæmi eru þó um að
kæruleiðir séu til stjórnvalda eða lögbundinna kærunefnda þar sem
aðild er lögbundin. Hér er að finna lista yfir þær kæruleiðir sem
neytendum standa til boða á Íslandi og hægt er að leita til á
Kvarta.is
Lausafjár- og þjónustukaup
Kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa var sett á laggirnar með
lögum um lausafjárkaup, nr. 50/2000 og lögum um þjónustukaup, nr.
42/2000 og lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Sjá einnig reglugerð
nr. 766/2006 um kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa.
Nefndin er til húsa hjá Neytendastofu, Borgartúni 21, 105
Reykjavík. Póstfang nefndarinnar er: knefnd@neytendastofa.is. Ekki
er tekið við álitsbeiðnum í gegnum póstfangið
Úrlausnir kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa, sjá hér.
Ársskýrslur kærunefndar lausafjár- og þjónustukaupa, sjá hér.
Vátryggingar
Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum starfar samkvæmt samkomulagi fjármála- og efnahagsráðuneytis, Neytendasamtakanna og Samtaka fjármálafyrirtækja. Úrskurðarnefndin tók til starfa árið 1994. Samþykktir nefndarinnar voru birtar með auglýsingu í Stjórnartíðindum nr. 336/1996, en þar er kveðið á um störf nefndarinnar.
Í nefndinni sitja þrír fulltrúar og þrír til vara, sem allir skulu vera löglærðir og valdir til tveggja ára í senn. Stofnaðilar nefndarinnar velja hver sinn aðal- og varamann til setu í nefndinni. Nefndin velur sér formann og varaformann.
Nefndin fjallar um ágreining varðandi bótaskyldu, þ.m.t. sök og sakarskiptingu milli neytenda og vátryggingafélags, sem starfsleyfi hefur hér á landi. Meginverkefni nefndarinnar er að fjalla um ágreining neytanda og innlends vátryggingafélags. Mögulegt er þó að vísa til nefndarinnar ágreiningi við erlent vátryggingafélag, sem starfsleyfi hefur hér á landi. Til þess að nefndin geti tekið slíkt mál til útskurðar þarf hið erlenda vátryggingfélag þó að veita samþykki sitt. Nefndin úrskurðar hvort ágreiningur aðila heyri undir nefndina og hvort hann sé þess eðlis eða studdur þeim gögnum að unnt sé að úrskurða í málinu. Telji nefndin svo ekki vera vísar hún málinu frá.
Nefndin fjallar ekki um eftirfarandi
atriði:
- bótafjárhæðir nema að fengnu samþykki beggja
aðila, það er neytandans og viðkomandi
vátryggingafélags.
- ágreining sem heyrir undir stjórnvöld
- kröfu neytenda sem ekki verður metin til
fjár
- breytingar á iðgjöldum vátryggingafélaga
- ágreiningsmál sem er til meðferðar almennra
dómstóla eða gerðardómseða að mál sé það óljóst, illa upplýst eða
krafa aðila það óskýr að það sé ekki tækt til úrskurðar.
Nefndin er til húsa hjá Fjármálaeftirlitinu, Höfðatúni 2, 105 Reykjavík.
Úrlausnir úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, sjá hér.
Ársskýrslur úrskurðarnefndar í vátryggingarmálum, sjá hér.
Fjármálamarkaður
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki starfar samkvæmt samkomulagi fjármála- og efnahagsráðuneytis, Samtaka fjármálafyrirtækja og Neytendasamtakanna frá 8. júní 2000.
Í nefndinni sitja fimm nefndarmenn sem skulu vera lögráða, hafa óflekkað mannorð og ætíð hafa haft forræði bús síns. Formaður og varaformaður skulu auk þess uppfylla hæfisskilyrði héraðsdómara. Skulu tveir nefndarmenn skipaðir sameiginlega af fjármálafyrirtækjum sem aðild eiga að nefndinni, tveir af Neytendasamtökunum og einn af viðskiptaráðherra sem jafnframt er formaður nefndarinnar. Varamenn eru skipaðir með sama hætti og skulu uppfylla sömu hæfisskilyrði. Varamaður formanns er formaður í forföllum hans.
Nefndin fjallar um ágreining viðskiptamanna við lánastofnanir (t.d. viðskiptabanka eða sparisjóð), verðbréfafyrirtæki, eða dótturfyrirtæki þessara fjármálafyrirtækja. Einnig fjallar nefndin um ágreining um yfirfærslur á milli viðskiptareikninga milli landa.
Viðskiptamenn sem eru í samningssambandi við viðkomandi fjármálafyrirtæki geta snúið sér til nefndarinnar. Fjármálafyrirtæki eiga að kynna viðskiptamönnum með tryggilegum hætti möguleika þeirra á að skjóta málum til nefndarinnar. Það eru viðskiptamenn hverju sinni sem hafa val um það hvort þeir leiti til nefndarinnar, þeir þurfa m.ö.o. ekki samþykki fjármálafyrirtækis fyrir málskoti.
Nefndin er til húsa hjá Fjármálaeftirlitinu, Katrínartún 2, 105
Reykjavík. Póstfang nefndarinnar er : urskfjarm@fme.is. Ekki er
tekið við álitsbeiðnum í gegnum póstfangið.
Opnunartími afgreiðslu er frá kl. 9:00 til 16:00 virka
daga. Símatími nefndarinnar er á þriðjudögum kl. 10-11 og
fimmtudögum kl. 14-15.
Úrlausnir úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki,
sjá hér.
Ársskýrslur úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki,
sjá hér.
Fjarskipti- og póstmál
Skv. 13. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun nr. 69/2003 er heimilt að kæra ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Sá sem á verulegra hagsmuna að gæta getur kært hvort heldur er málsmeðferð eða efni ákvörðunar. Kæra þarf að berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að kæranda varð kunnugt um ákvörðunina. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi. Frekari upplýsingar um málsmeðferð nefndarinnar eru í reglugerð um úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála nr.36/2009.
Í nefndinni sitja þrír nefndarmenn sem skipaðir eru af innanríkisráðherra og jafnmargir til vara. Formaður og varaformaður skulu fullnægja hæfisskilyrðum hæstaréttardómara. Formaður og varaformaður skipa jafnan nefndina á hverjum tíma ásamt meðnefndarmanni. Varaformaður leysir formann af ef hann forfallast. Skipunartími nefndarinnar er fjögur ár.
Fasteignaviðskipti
Eftirlitsnefnd félags fasteignasala starfar samkvæmt 19. gr.
laga um sölu fasteigna-, fyrirtækja- og skipa nr.
99/2004. Eftirlitsnefnd félags fasteignasala skal
hafa eftirlit með því að fasteignasalar starfi í samræmi við
fyrirmæli laganna, siðareglur félagsins og góðar venjur í
fasteignasölu og hefur nefndin ákveðnar heimildir til rannsóknar
beitingar agaviðurlaga skv. III. kafla laganna.
Nefndin er skipuð af ráðherra. Formaður nefndarinnar er skipaður án
tilnefningar og skal hann vera lögmaður og fullnægja skilyrðum til
að gegna embætti hæstaréttardómara. Tveir nefndarmenn skulu
tilnefndir af Félagi fasteignasala og skal annar þeirra vera
fasteignasali en hinn löggiltur endurskoðandi. Varamenn skulu
skipaðir á sama hátt og fullnægja sömu skilyrðum.
Efnalaugar og þvottahús
Úrskurðarnefnd Neytendasamtakanna og Félags efnalaugaeigenda fjallar um kvartanir vegna þjónustu efnalauga og þvottahúsa. Nefndina skipa þrír fulltrúar, einn tilnefndur af Neytendasamtökunum, einn af Félagi efnalaugaeigenda og einn af viðskiptaráðherra, sem skal vera löglærður og er jafnframt formaður nefndarinnar.
Úrskurðarnefndin er vistuð hjá Neytendendasamtökunum.
Nefndin er til húsa hjá Neytendasamtökunum Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík.
Úrlausnir úrskurðarnefndar um þjónustu efnalauga og þvottahúsa,
sjá hér.
Ársskýrslur úrskurðarnefndar um þjónustu efnalauga og þvottahúsa
sjá hér.