• A-
  • A
  • A+
Um kvarta.is

Kvarta.is er gagnvirk rafræn gátt fyrir neytendur, fyrirtæki og starfandi úrskurðarnefndir. Á einum stað geta neytendur lagt fram beiðnir til allra starfandi úrskurðaraðila um að mál þeirra séu tekin til meðferðar og leitað sátta.

Í öllum viðskiptum milli neytenda og fyrirtækja sem selja vörur eða þjónustu getur eitthvað farið úrskeiðis. Vara getur reynst gölluð eða þjónusta ekki í samræmi við samning eða lögmætar væntingar neytanda. Algengt er að fjárhæð í viðskiptum við neytendur sé lág og því hlutfallslega dýrt fyrir neytendur að fara með mál fyrir dómstóla. Neytendur eiga rétt á að fá slík mál tekin fyrir utan dómstóla þar sem slík meðferð er bæði ódýrari og skjótvirkari leið til að ná fram sátt ef eitthvað hefur farið úrskeiðis í viðskiptum.

Mínar síður

Neytendur sem vilja leggja inn erindi frumskrá sig með því að fara á hnappinn Mínar síður. Við skráningu fá þeir sitt sérsvæði þar sem þeirra mál og málsgögn eru vistuð þeim að kostnaðarlausu. Þegar að þú hefur skráð þig og fært inn þínar eigin upplýsingar, s.s. nafn, tölvupóstfang o.fl. þá getur þú fyllt inn eyðublað hlutaðeigandi nefndar og sett viðhengi sem eiga við í málinu. Eftir að mál er sent inn skoðar starfsmaður viðkomandi nefndar máli og sé það tækt til meðferðar er það sent til gagnaðila. Vanti frekari gögn er send beiðni til þín um það. Telji nefndin að máli þurfi að vísa frá færðu einnig upplýsingar um það. Umsjón og upplýsingar með vefsetrinu hefur Neytendastofa.

Tenging kvarta.is og ESB kerfisins

Í þeim tilvikum sem að viðskipti fara fram á milli neytanda sem búsettur er á Íslandi og fyrirtækis sem er staðsett í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu þá getur þú lagt fram mál þitt og fengið úrslausn erindis án dómstólameðferðar. Tengill á það kerfi finnur þú hér.

Erindi til úrskurðarnefnda frá ESB-kerfi

Í þeim tilvikum sem að neytandi sem er búsettur í öðru EES-ríki vill leggja fram kvörtun gagnvart íslensku fyrirtæki þá leggur hann það fram í ESB-kerfinu. Kvarta.is veitir rafræna þjónustu frá því kerfi til úrskurðarnefnda sem starfa að úrlausn deilumála utan dómstóla fyrir neytendur hér á landi. Þau mál koma því inn í málaskrá þeirra nefnda hér á landi sem tengdar eru við kvarta. Is. Í því felst mikil hagræðing og einföldun fyrir íslenskar úrskurðarnefndir svo og íslensk fyrirtæki enda vinnuumhverfið þannig gert einfalt og einsleitt, óháð því hvort um er að ræða innlend mál eða mál vegna viðskipta yfir landamæri.